Search
Close this search box.

ALMENNIR VIÐSKIPTASKIPTASKILMÁLAR

Þeir viðskiptamenn sem taka vöru út í reikningsviðskiptum samþykkja um leið viðskiptaskilmála félagsins eins og þeir eru á hverjum tíma.

1. Gildissvið skilmálanna

1.1. Undir skilmála þessi fellur öll vara og þjónusta, sem keypt er af Hjálpartækjum sem er eigandi Hjálpartækja.is hér eftir kallað Hjálpartæki. Félagið áskilur sér rétt til að breyta bæði almennum viðskiptaskilmálum og sérskilmálum án fyrirvara. Með skilmálum þessum falla eldri skilmálar úr gildi.

2. Pantanir og tilboð

2.1. Kominn er á samningur um viðskipti á milli Hjálpartækja og viðskiptamanns þegar viðskiptamaður hefur pantað vöru t.d. í netið, í gegnum síma eða tölvupóst, staðfest tilboð, undirritað samning eða samningsviðauka, tekið við vöru og/eða greitt fyrir vöru. Að öðru leyti gilda samningalög um viðskipti aðilanna.

2.2. Hjálpartæki viðskiptamanni verðtilboð með fyrirfram ákveðnum gildistíma er Hjálpartækja óbundið af samþykki sem berst eftir þann tíma. Sé tilboð ekki með gildistíma gildir það í 30 daga frá dagsetningu þess, nema annað sé tekið fram.

3. Framsal

3.1. Framsal á umsömdum réttindum til þriðja aðila er óheimilt og öðlast ekki gildi nema kveðið sé sérstaklega á um heimild til slíks framsals í samningi eða sérskilmálum.

4. Sérstakir samningar

4.1. Almennir viðskiptaskilmálar þessir, ásamt samþykktu tilboði, sérstökum skilmálum auk samnings sjálfs og eftir atvikum samningsviðauka við viðskiptamann, fela að jafnaði í sér heildarsamning aðilanna um viðskiptin. Ef um er að ræða sérstakan samning við viðskiptamann, s.s. verksamning, gilda ákæði samnings framar viðskiptaskilmálum þessum.

5. Verð, skilmálar, greiðslukjör, tilboð, afslættir o.fl.

5.1. Allt verð sem félagið gefur upp er grunnverð. Verð er ýmist gefið skv. verðskrá á netinu, í verslun eða samkvæmt tilboði. Virðisaukaskattur er innifalinn í uppgefnu verði nema annað sé sérstaklega tekið fram. Verð getur breyst án fyrirvara. Verð á vef eru birt með fyrirvara um innsláttar, prentvillur eða vegna mistaka þegar upplýsingar voru settar á vefinn. 

5.2. Staðgreiða skal allar vörur nema annað sé samið.

5.3. Ef um er að ræða staðgreiðsluafslátt eða magnafslátt dregst fjárhæð afsláttar frá grunnverði. Afslættir eru ekki gefnir af tilboðsverði.

5.4. Öll afgreidd vara er eign Hjálpartækja þar til fullnaðargreiðsla hefur átt sér stað. Greiðsla með greiðslukorti eða öðrum greiðslumiðli telst ekki fullnaðargreiðsla fyrr en full skil hafa verið gerð gagnvart Hjálpartækjum. Sala, framsal, veðsetning eða önnur ráðstöfun söluhlutar er óheimil án undangengins samþykkis Hjálpartækja á meðan félagið telst eiga eignarrétt að hlut.

5.5. Í sérstökum skilmálum og sértilboðum Hjálpartækja til viðskiptavina kunna að vera gerðir fyrirvarar eða sett skilyrði. Ganga þau atriði sem þar koma fram framar viðskiptaskilmálum þessum.

Eftirfarandi áskilnaður er gerður:

Áskilinn er réttur til verðbreytinga án fyrirvara.

Hjálpartæki áskilur sér rétt til að gera breytingar á vöruframboði sínu án fyrirvara.

Hjálpartæki ábyrgist ekki að eiga allar vörur sem það selur á lager.

Ef kaupandi samþykkir tilboð í vöru og hún er sérpöntuð samkvæmt því er kaupandi skuldbundinn til að versla vöruna eftir að pöntun hefur verið gerð.

6. Söluverð og eignarréttarfyrirvarar

6.1. Kaupandi veitir félaginu söluveð í hinu keypta, sbr. lög nr.75/1997 um samningsverð

Veðrétturinn nær til allra þeirra hluta sem greindir eru í samningi/á reikningi þar til samningsverð/reikningur er að fullu greiddur ásamt vöxtum og kostnaði ef við á. Veðið er til tryggingar kröfu félagsins til alls þess endurgjalds sem greint er í samningi/reikningi, ásamt vöxtum og kostnaði. Hluti þá er veðsettir eru má kaupandi hvorki selja né veðsetja án skriflegs samþykkis félagsins. Ef vanskil verða á greiðslu þeirra krafna sem veðrétturinn nær til, getur Hjálpartæki leitað fullnustu kröfu sinnar.

6.2. Félagið selur vörur sínar með eignarréttarfyrirvara og skal um meðferð hans farið eftir 42. gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð.

7. Afhending vöru

7.1. Afhending söluhlutar, framsal skjala eða önnur yfirfærsla ráðstöfunarréttar yfir söluhlut fer fram gegn greiðslu söluverðs nema um reikningsviðskipti eða staðgreiðslulán Visa og Eurocard sé að ræða.

7.2. Hjálpartæki vátryggir ekki vöru í flutningum. 

7.3. Áhætta af hinu selda flyst úr hendi Hjálpartækja til kaupanda við afhendingu vöru. Samningur um akstur vöru á afgreiðslustað breytir ekki því tímamarki sem áhættan af kaupunum flyst yfir til kaupanda. Ef hlutar er ekki vitjað eða honum veitt viðtaka á afhendingartíma og það má rekja til kaupanda eða atvika sem hann varða, flyst áhættan yfir á kaupandann þegar hlutur er honum til ráðstöfunar og viðtökudáttur verður af hans hálfu.

7.4. Hjálpartæki ber enga ábyrgð á þeim aðstæðum sem upp gætu komið og valda því að ekki er hægt að afhenda vörur á afhendingarstað.

8. Eiginleikar vöru

8.1. Um eiginleika vöru, og gæðastaðla sem ætlað er að tryggja þá eiginleika, fer skv. birtum upplýsingum í leiðbeiningum um notkun vara og tækja sem fylgja með þeim eða eru aðgengilegir á vefsíðu framleiðanda vöru/tækis. Það er alfarið á ábyrgð viðskiptamanns ef hann fylgir ekki leiðbeiningum um notkun vöru.

9. Vanskil og dráttarvextir

9.1. Sé reikningur ekki greiddur í síðasta lagi á eindaga, þ.e. 14 dögum eftir útgáfu reiknings, reiknast dráttarvextir skv. 6. gr. l. 38/2001 af heildarskuld viðskiptamanns við félagið frá fyrsta degi næsta mánaðar á eftir úttektarmánuð.

9.2. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður alla afslætti sem kunna að hafa verið gefnir af vöruúttektum skv. úttektarnótum og/eða reikningum, þar með talda afslætti sem veittir eru í sérstökum tilboðum og/eða samningum við viðskiptamann án fyrirvara, ef greitt er eftir eindaga eða eftir atvikum umsaminn greiðsludag ef það er annar dagur en eindagi.

10. Innheimtukostnaður

10.1. Falli skuld í eindaga er vanskilagjald innheimt af viðskiptamanni. Einnig eru viðskiptamanni send innheimtubréf og innheimtuviðvörun. Kostnaður vegna þessa, er skuldfærður á viðskiptareikning viðskiptamanns hjá félaginu.

10.2. Vísað er til innheimtulaga nr. 95/2008 og gildandi reglugerða varðandi innheimtugjöld.

Sé skuld ekki greidd innan þeirra fresta sem viðskiptamanni eru veittir með innheimtubréfi og/eða innheimtuviðvörun hefur félagið fulla heimild til að senda viðskiptaskuld í löginnheimtu án frekari fyrirvara.

11. Vöruskil

11.1. Vörum fæst skipt eða skilað. 

Ef varan er sannanlega gölluð og ekki er unnt að bæta gallann með viðgerð.

Ef varan er í upprunalegu ásigkomulagi án sjáanlegra skemmda og ónotuð.

Í samræmi við ákvæði viðkomandi samnings, hafi verið gerður sérstakur samningur um kaupin.

Vöru fæst einungis skilað gegn framvísun reiknings. Sérpantaðri vöru fæst ekki skilað.

11.1. Endurgreiðslur: 

11.2. Gölluð vara: 

Heimlán: 

Kaupanda ber að kanna hvort kreditreikningur og/eða móttökukvittun sé í samræmi við vöruskil og ber hann ábyrgð á því hafi hann tekið við kreditreikningi eða móttökukvittun sem er ekki rétt. Getur hann ekki krafist leiðréttinga vegna þessa.


12. Ábyrgð á vöru og takmörkun ábyrgðar

12.1. Ábyrgð Hjálpartækja á göllum í framleiðsluvörum er takmörkuð við það að félagið afhendir nýja vöru frá verksmiðju í stað þeirrar sem verður að skipta um. Ábyrgð félagsins nemur þó aldrei hærri fjárhæð en viðskiptamaður greiddi fyrir vöruna í upphafi. Félagið tekur ekki ábyrgð á kostnaði við viðgerð eða ábyrgð á afleiddu tjóni. Lögð er áhersla á að viðskiptamaður skoði vöru við móttöku, þ.e. áður en hún er tekin í notkun og að gallar á vöru séu tilkynntir umsvifalaust til Hjálpartækja. Eftir að vara hefur verið afhent á umsaminn afhendingarstað eftir beiðni viðskiptamanns, ber Hjálpartæki enga ábyrgð á því að vörunar verði fyrir tjóni eða valdi tjóni gagnvart þriðja aðila. Við mat á því hvort söluhlutur er gallaður skal miðað við það tímamark þegar áhættan af söluhlut flyst yfir til kaupanda sbr. grein 7.

12.2. Ef kaupandi leggur ekki fram kvörtun innan árs frá þeim degi er söluvara er afhent getur hann ekki borið galla fyrir sig síðar. Sé um neytendakaup að ræða skal kaupandi leggja fram kvörtun innan 60 daga frá afhendingu vöru og miðast endingartími við það sem eðilegt getur talist um slíka söluhluti.

12.3. Ábyrgð félagsins er miðuð við að viðskiptavinur hafi notað vöruna í samræmi við leiðbeiningar og venjulega eða eðlilega notkun. Hafi Hjálpartæki gefið út lýsingu á notkun vörunnar, handbækur eða aðrar leiðbeiningar um notkun vörunnar er ábyrgð félagsins háð því að notkun vöru hafi verið í samræmi við það. Kvörtun vegna gallaðrar vöru eða þjónustu skal berast strax og gallans verður vart. Kaupanda ber skylda til að skoða vöru vandlega við móttöku og tilkynna félaginu um galla áður en vara er tekin í notkun.

12.4. Viðskiptamenn félagsins eiga engan rétt til skaðabóta, þegar vanefndir orsakast af óviðráðanlegum atvikum (Force Majeure) svo sem vinnudeilum, styrjöldum, uppreisnum, náttúruhamförum, aðgerðum stjórnvalda á sviði gjaldeyris- og viðskiptamála, viðskiptabönnum, hafnbönnum, almennum samgönguhindrunum, orkuskorti, heimsfaraldri og öðrum óviðráðanlegum atvikum.

12.5. Framvísa skal sölureikningi til staðfestingar á ábyrgð vegna vöru.

12.6. Ábyrgð nær ekki til vinnu eða aukakostnaðar, t.d. aksturs og ferðatíma. Ábyrgð nær ekki til kostnaðar sem hlýst af breytingum annarra en starfsmanna félagsins á hinu selda.

12.7. Ábyrgð fellur niður í eftirtöldum tilvikum:

Þegar tjón verður sem stafar af rangri meðferð, misnotkun eða slysni.

Viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en starfsmönnum Hjálpartækja eða aðila sem Hjálpartæki útvegar eða án samþykkis fyrirtækisins.

Átt hefur verið við hið selda þannig að skemmd hefur hlotist af.

12.8. Kaupandi á engar kröfur á hendur Hjálpartæki vegna eiginleika hins keypta sem hann varð var við, mátti verða var við eða mátti sjá við móttöku eða notkun, af leiðbeiningum, lýsingum eða öðrum upplýsingum er fylgdu hinu keypta.

12.9. Hjálpartæki ber í engum tilvikum ábyrgð á rekstrartapi kaupanda eða öðru óbeinu tjóni hans, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnað, hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á hinu keypta eða til annarra ástæðna.

12.10. Kaupandi getur ekki borið neitt það fyrir sig sem galla sem hann vissi eða mátti vita um þegar kaupin voru gerð. Hafi kaupandi ekki sinnt rannsóknarskyldu við afhendingu getur kaupandi ekki borið fyrir sig neitt það sem hann hefði þá átt að veita athygli. Framangreint gildir einnig hafi kaupandi fyrir kaup rannsakað sýnishorn af hlutnum eða látið það hjá líða án gildrar ástæðu og gallinn varðar eiginleika sem sjá mátti á sýnishorninu.

12.11. Þurfi Hjálpartæki að greiða kaupanda bætur í tengslum við samning þennan getur kaupandi aldrei farið fram á greiðslu bóta sem eru hærri en sem nemur kaupverði hins keypta.

13. Viðskiptareikningar

13.1. Óski viðskiptamaður eftir reikningsviðskiptum skal hann sækja sérstaklega um það. Hægt er að gera það á sérstöku vefsvæði á vefsíðu Hjálpartækja. Viðskiptareikningar fylgir hverri pöntun við afhendingu o ger eindagi 14 dögum eftir útgáfu reiknings. 

13.2. Eindagi er 14. dagur eftir eftir útgáfu reiknings.

13.3. Hjálpartæki setur eftirfarandi skilyrði fyrir reikningsviðskiptum:

Að viðskiptamaður sé ekki skráður á vanskilaskrá Creditinfo.

Félagið áskilur sér rétt til að afla frekari trygginga fyrir reikningsviðskiptum ef kaup fara yfir 5 milljónir s.s. bankaábyrgða, veðtrygginga eða annarra trygginga sem félagið metur fullnægjandi.

13.4. Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta áður ákveðnum afsláttarkjörum viðskiptamanns án fyrirvara eða sérstakrar tilkynningar án þess að litið sé á það sem uppsögn viðskipta.

14. Greiðsla reikninga

14.1.  Það fyrirkomulag er viðhaft við innheimtu viðskiptaskuldar vegna reikningsviðskipta hjá Hjálpartækja að greiðsluseðlar eru sendir viðskiptamanni með vörunum. Hægt er að óska eftir afriti í töluvpósti. Telji viðskiptamaður skuldina of háa ber honum að gera athugasemdir til félagsins innan 10 daga frá útgáfu hans. Annars telst reikningur réttur.

14.2. Þeir viðskiptamenn sem fá senda greiðsluseðla samþykkja að greiða sérstakt greiðsluseðlagjald. Gjaldið er ekki innheimt ef greiðsluseðill birtist eingöngu í heimabanka að ósk viðskiptamanns.

15. Annað

15.1. Eftir því sem við á gilda lög um lausafjárkaup og lög um neytendakaup um viðskipti skv. viðskiptaskilmálum þessum.

16. Lögsaga og varnarþing

16.1. Um samninga Hjálpartækja. og viðskiptavina þess, skilmála þessa og aðra skilmála þeim tengdum fer skv. íslenskum lögum.

16.2. Komi til málaferla eða löginnheimtu vegna viðskipta félagsins og viðskiptamanns má reka mál vegan þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.